Þjónustumiðstöð
Flest fyrirtæki í dag nota tölvur og annan tæknibúnað í daglegum rekstri. Ef vandamál koma upp í tölvubúnaði þá getur það valdið rekstrartjóni og töfum. Hvort sem um er að ræða stór eða smá fyrirtæki þá fara fjölmargar vinnustundir í lagfæringar á tölvutengdum vandamálum. Í stað þess að starfsfólk fyrirtækis þíns eyði mikilvægum tíma í úrlausn slíkra vandamála þá er þjónustumiðstöð TM Software lausnin fyrir þig.
Alltaf við símann
Sérstaða þjónustumiðstöðvar TM Software felst í því að þar er vakt allan sólarhringinn allan ársins hring og þar færðu aðgang að bestu sérfræðingum landsins í tölvu- og tæknimálum. Þjónustumiðstöð TM Software getur m.a. sinnt almennri notendaþjónustu á skrifstofutíma og sinnt bakvöktum þess á milli en starfsfólk þjónustumiðstöðvarinnar tekur við fyrirspurnum bæði í gegnum síma og tölvupóst. Það er markmið þjónustumiðstöðvar TM Software að leysa sem flest mál í fyrsta símtali. Ef ekki er hægt að leysa vandamál viðskiptavinar strax þá er því komið til viðeigandi sérfræðinga sem sinna því eins fljótt og auðið er.





