19.08. 11
hlaupastyrkur.is - Reykjavíkurmaraþon

16 starfsmenn TM Software ætla að hlaupa ýmist 10 eða 21 km og safna um leið áheitum fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Léttu átaki var hleypt af stað innanhús undir slagorðinu "Vefum til góðs", en TM Software hefur að undanförnu sett upp nokkra af stærstu áheitavefum landsins með WebMaster vefumsjónarkerfinu.

Má þar nefna Mottumars.is, áheitavef Krabbameinsfélags Íslands í átakinu Karlmenn og Krabbamein, en í þeirri söfnun skörtuðu ótal manns glæsilegum skeggjum af ýmsu tagi og söfnuðu rétt tæplega 30 milljónum króna.

Meðan fæturnir bera mig, mfbm.is, var áheitavefur tveggja hjóna sem hlupu hringinn í kringum landið í vor og söfnuðu áheitum til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna og söfnuðu 13 milljónum króna.

Hlaupastyrkur.is er styrktarvefur Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, en þar geta hlauparar í öllum vegalengdum Reykjavíkurmaraþons skráð sig og safnað áheitum til styrktar góðgerðarfélags að eigin vali.

TM Software óskar öllum hlaupurum góðs gengis á laugardaginn.