Hugbúnaðarfyrirtækið TM Software hefur selt eigið tímaskráningar- og verkbókhaldskerfi til rúmlega eitt þúsund viðskiptavina í yfir 45 löndum á aðeins þremur árum. Meðal viðskiptavina eru fjölmörg stórfyrirtæki og stofnanir; Kauphöllin í Lundúnum, Deutsche Bank og Intel. Öll sala á lausninni á sér stað í gegnum netið.
Tempo, er viðbót við verkbeiðna- og þjónustukerfið JIRA frá ástralska hugbúnaðarfyrirtækinu Atlassian og gerir notendum kleift að tengja við tímaskráningar og koma í veg fyrir tvískráningar beiðna og reikninga. Tempo veitir meðal annars aukna yfirsýn yfir mannafla og áætlanagerð, auðveldar tímaskráningar og hefur yfir að ráða ferli yfir inneimtu og tengimöguleika við önnur kerfi svo dæmi séu tekin.
Pétur Ágústsson vörustjóri Tempo hjá TM Software segir að sala á Tempo leyfum hafi margfaldast á milli ára. „Aukningin er hátt í 500% frá síðasta ári og hefur markaðsherferðin og sala einungis farið fram í gegnum netið. Við erum því afar ánægð með árangurinn.“
Pétur segir að þróun á Tempo fyrir JIRA frá Atlassian hafi staðið yfir í á fjórða ár, en Tempo var upphaflega innanhússlausn hjá TM Software sem nú hafi skilað félaginu fjölmörgum leyfum og samningum. „Sífellt er unnið að því að betrumbæta lausnina en nú er hún meðal annars samþætt við tölvuský Atlassian OnDemand sem eykur afkastagetu lausnarinnar og samskiptamöguleika viðskiptavina allverulega.“

