Microsoft Office 2007

Office 2007 er hlaðið af nýrri grafík, sniðmáta, myndasafna og endurbættrar valmyndar og verkstika sem sýna ávallt algengustu aðgerðir. Saman gerir þetta að verkum að mun auðveldara er en áður að hanna og birta upplýsingar á sem áhrifaríkastan hátt. Nýir möguleikar eru meðal annars:

  • Valmyndir og tækjastikur taka mið af þeim verkefnum sem verið er að vinna að hverju sinni, sem einfaldar aðgengi að réttum skipunum og einfaldara er að finna réttu tólin.
  • Stöðugri punkta og númerasetning hjálpa til við áreiðanlegri framsetningu skjala.
  • Endurbætt texta- og fonta meðhöndlun ásamt gröfum og myndasöfnum bjóða upp á víðtækari uppsetningu skjala.
  • Office stílsíður gera alla vinnu samræmda yfir hönnun og framsetningu upplýsinga, þvert yfir öll Office kerfi.

Vinnið með endurbættum áreiðanleika og öryggi

Endurbætt ruslpóstsía og áreiðanleikavörn (Anti-Phising filter), sjálfvirk skjalaendurbygging og skjalaskoðun sem fjarlægir persónugreinanleg gögn, gerir Office 2007 starfsfólki kleift að vinna með auknu öryggi. Nýjar lausnir og endurbættar eru m.a:

  • Ruslpóst sía hjálpar til við að draga umtalsvert úr óumbeðnum ruslpósti.
  • Áreiðanleikavörn (Anti-phishing) gera notendum viðvart um grunsamleg tölvupóstskeyti sem eru líklega að reyna að svíkja út upplýsingar og fé.
  • Skjalaendurbygging aðstoðar við að endurbyggja Office skjöl ef til þess kemur að vélbúnaður bilar eða hættir að virka (frýs).
  • Skjalaskoðun fer yfir skjöl og upplýsingar og merkir og fjarlægir persónugreinanlegar upplýsingar, athugasemdir og ritsögu úr skjölum.

Finnið skipanir og aðstoð á auðveldan hátt

Office 2007 hefur mikið bætt leiðarkerfi, tækjastikur og hjálp sem innifela m.a. kennslu og leiðbeiningar með skref fyrir skref leiðbeiningum, svo starfsfólk geti á einfaldan hátt lært fljótt og vel á nýtt Office umhverfi og fundið svör við spurningum.

  • Hnappar með skipunum raða sér á tækjastiku efst á skjánum og taka mið af þeim verkefnum sem unnið er að hverju sinni. Tækjastikan sýnir allar algengustu skipanir, auk þeirra sem notandinn hefur notað síðast, sem áður leyndust í löngum felligluggum.
  • Hjálpin í Office býður upp á einfalda samþættingu innri leitar við leit á Internetinu. Stærri og mun innihaldsríkari hjálpartextar eru við aðgerðahnappa í tækjastikunni, sem birtast þegar músin ef færð yfir hnappana.
  • Valmynd og skipanir eru háðar verkefnaháðar og breytast sjálfkrafa eftir því hvaða verkefni er verið að takast á við hverju sinni.
  • Kennsla á netinu býður upp á skref fyrir skref leiðbeiningar fyrir algeng verkefni.

Komdu skipulagi á tímann og samskiptin

Office 2007 heldur mun betur utan um tölvupóst og fundarbókanir, sem hjálpar mikið við að skipuleggja vinnudaginn og losa tíma fyrir aukin afköst. Hægt er á einfaldan hátt að leita í öllum tölvupóstum, deila dagbókinni með samstarfsfólki og afla frétta og upplýsa af vefsíðum með RSS veitum. Nýir möguleikar og endurbætur eru m.a.

  • Sveigjanleg leitarvél sem býður upp á fljótvirka leit að upplýsingum í öllum Outlook kerfiseiningum, eins og tölvupóstum, dagbókarfærslum og tengiliðum.
  • Hvað-á-að-gera verkstika tekur saman öll skipulögð verkefni, fundi og tölvupóst sem notandi hefur flaggað til frekari vinnslu, á áberandi stað á vinnuborðinu.
  • Litamerkingar á tölvupósti auðvelda til muna að halda skipulagi og forgangsröðun á skeytasendingum.
  • Fréttaveitan er RSS móttakari sem býður upp á þann möguleika að safna fréttum og öðru vef veittu efni á einn í Outlook 2007

 

Samanburður á Office 2007 vöndlum




 

Shortcuts


Not yet translated.


Search




Change fontsize