Office Communications Server 2007
Office Communications Server 2007 er fáanlegur í tveimur útgáfum, standard og Enterprice.

- Standard Edition. Innifelur allar þjónustur, sem og geymir gagnagrunni með notendaupplýsingum á einum netþjóni. Standard útgáfan þjónar fullkomlega litlum og meðalstórum fyrirtækjum.
- Enterprise Edition. Aðskilur þjónustur frá gagnageymslum, til þess að ná fram auknum afköstum og áreiðanleika. Hefðbundin Enterprice uppsetning samanstendur venjulega af tveimur eða fleirum netþjónum (front-end servers) með álagsjöfnunarbúnar þar fyrir framan og tengist bakendabúnaði, sem geymir og meðhöndlar gögnin. Einnig er hægt að setja ákveðna fjarfundarþjónustur upp á sér netþjónum fyrir aukna afkastagetu og áreiðanleika. Enterprice útgáfan er ætluð stærri fyrirtækjum, sérstaklega í alþjóðlegu umhverfi.
Báðar útgáfur styðja fulla útgáfu af smáskilaboðum (IM), viðveru starfsmanna, fjarfundarkerfi og IP símkerfi.
Office Communications Server 2007 er grunnurinn af samhæfðu samskiptaumhverfi Microsoft (Microsoft Unified Communications).
Microsoft er með þessu að sameina tölvupóst, IP símalausnir, hljóð- og mynd og fjarfundi í eitt samhæft umhverfi sem er hannað með þarfir starfsfólks í huga, ekki tækni.
Unified Communications hugbúnaður og þjónusta samanstendur af:
- Microsoft Exchange Server 2007
- Microsoft Office Communications Server 2007
- Microsoft Office Communicator
- Microsoft Office Live Meeting
- Microsoft Office System, sem innifelur SharePoint, Microsoft Office Outlook, Microsoft Office Word, Microsoft Office Excel, Microsoft Office PowerPoint og fleira.
- Microsoft Exchange Hosted Services: hosted e-mail, filtering, archiving, encryption og backup

