Office SharePoint Server 2007

Office SharePoint Server 2007 býður upp á samhæfðan vöndul af vefþjónustum sem eru einfaldar í notkun og hámarkar virkni og hámarkar afköst starfsmanna, upplýsinga, verkferla og viðskiptakerfa. Eftirfarandi eru tíu dæmi um hvernig Office SharePoint Server 2007 getur gagnast fyrirtækinu þínu.

  • Sýnir starfsfólki einfallt, kunnuglegt og samfellt notendaviðmót
  • Aukin afköst starfsmanna með því að einfalda daglega upplýsingavinnslu
  • Styður við uppfyllingu laga og reglna með víðtækri stjórn á upplýsingum.
  • Árangursrík stjórnun og endurnýting á upplýsingum fyrir aukið virði þeirra
  • Einfaldar aðgengi þvert á fyrirtæki að skipulögðum og óskipulögðum upplýsingum, sem geta legið í mörgum og mismunandi kerfum
  • Tengja saman fólk sem býr yfir upplýsingu og þekkingu
  • Flýtir fyrir viðskiptaferlum og heldur utan um öll rafræn innsláttarform
  • Deildu viðskiptaupplýsingum og tryggðu á sama tíma áreiðanleika og öryggi gagnanna
  • Auðveldaðu betri og upplýstari ákvarðanatöku með framboði á mikilvægum viðskiptalegum upplýsingu á einum aðgengilegum stað.
  • Veittu aðgang að einu samhæfðu umhverfi til þess að viðhalda innraneti, vefsíðum og veflægum kerfum, þvert á fyrirtækið
  • Sýnir starfsfólki einfallt, kunnuglegt og samfellt notendaviðmót
    Office SharePoint Server 2007 er þéttofið við þau verkfæri sem starfsfólk þekkir og notar daglega við vinnu sína, tölvupóst og vefskoðara. Einfaldleikinn og kunnugleikinn sýnir fólki samfellt og kunnuglegt notendaviðmót sem einfaldar hvernig fólk vinnur með upplýsingar og viðskiptagögn. Starfsfólk getur á auðveldan hátt notað þjónustur og sjálfvirkni til þess að ljúka verkefnum, án þess að þurfa á frekari aðstoð að halda.
  • Aukin afköst starfsmanna með því að einfalda daglega upplýsingavinnslu
    Með því að nota verkflæði í Office SharePoint Server 2007, er hægt að einfalda og hraða verkefnum líkt og að opna verkbeiðnir, fylgja eftir málum og taka saman skýrslur um venjuleg verkefni eins og skjalarýni og samþyktarferli, eftirfylgni kvartana og undirskrifta, án neinnar forritunar. Að breyta og bæta við fyrirliggjandi verkflæði er gert á einfaldan hátt með tólum eins og Microsoft Visual Studio og Microsoft Office SharePoint Designer 2007.
  • Styður við uppfyllingu laga og reglna með víðtækri stjórn á upplýsingum.
    Hjálpar til við að stjórna viðkvæmum viðskiptaupplýsingum og dregur úr áhættu á lögsóknum vegna upplýsingastjórnunar, með því að stjórna geymsluáætlunu, gagnarýni viðskiptaupplýsinga til samræmis við þau lög og reglur sem gilda í viðskiptaumhverfinu. Réttindastjórnun og upplýsingastjórnun gera stjórnendum kleift að verja viðkvæmar upplýsingar, jafnvel þó notendur séu ekki tengdir við miðlægt umhverfi.
  • Árangursrík stjórnun og endurnýting á upplýsingum fyrir aukið virði þeirra
    Almennir starfsmenn geta á einfaldan hátt lagt til upplýsingar á vefsíður og lagt það til fyrir samþykki og dagsetta birtingu á Internetinu. Stjórnun á upplýsingum á mörgum tungumálum er einfalt í Office sharePoint Server 2007 í gegnum ný skjalasnið og sniðmát, sem eru hönnuð sérstaklega til þess að halda upp á tengslin á milli frumskjalanna og þýddra útgáfa þeirra.
  • Einfaldar aðgengi þvert á fyrirtæki að skipulögðum og óskipulögðum upplýsingum, sem geta legið í mörgum og mismunandi kerfum
    Gefa notendum aðgang að upplýsingum sem liggja í algengum upplýsingakerfum eins og Navision og Siebel, í gegnum staðlaðar tengingar í Office SharePoint Server 2007. Notendur geta einnig búið til sínar eigin samskiptaleiðir við upplýsingakerfi með því að draga til sín forsniðnar gagnatengingar sem hægt er að aðlaga að hverjum og einum. Skipulagðar gagnageymslur koma skipulagi á vistun upplýsinga og gagna á einum miðlægum stað í fyrirtækinu.
  • Tengja saman fólk sem býr yfir upplýsingu og þekkingu
    Með leitarmöguleikum í SharePoint Enterprice, tengir saman viðskiptaupplýsingar við upplýsingar um fólk, skjöl og vefsíður sem veitir víðtæk og raunhæf svör við leitarskilyrðum. Ríkuleg leitarskilyrði eins og samantekt sömu niðurstaðna, stafsetningar leiðrétting og viðvaranir, gefa niðurstöðunum aukinn áreiðanleika og aðstoða notendur við að finna það sem leitað er að á einfaldan hátt.
  • Flýtir fyrir viðskiptaferlum og heldur utan um öll rafræn innsláttarform
    Notið sjöll rafræn innsláttarform til þess að safna nauðsynlegum viðskiptaupplýsingum frá viðskiptavinum, samstarfsaðilum og birgjum í gegnum vefskoðara, án allrar forritunar. Innbyggð gagnarýni aðstoðar við að safna reglulega og áreiðanlegum gögnum, sem geta flætt beint inn í önnur upplýsingakerfi til frekari vinnslu. Þannig má komast hjá tímafrekri tvískráningu og innsláttarvillur starfsmanna eru útilokaðar.
  • Deildu viðskiptaupplýsingum og tryggðu á sama tíma áreiðanleika og öryggi gagnanna
    Gefðu starfsfólki aðgang að rauntímagögnum, gagnvirkum Office Excel sjölum í gegnum vefskoðara með Excel þjónustum keyrandi á Office SharePoint Portal Server 2007. Notaðu þessi Excel skjöl til að viðhalda og dreifa upplýsingum á áreiðanlegan hátt. Deildu einu, miðlægu, uppfærðu skjali og verndaðu á sama tíma viðkvæmar upplýsingar sem geta leynst í skjölunum.
  • Auðveldaðu betri og upplýstari ákvarðanatöku með framboði á mikilvægum viðskiptalegum upplýsingu á einum aðgengilegum stað.
    Office SharePoint Portal Server 2007 einfaldar gerð lifandi, gagnvirkar upplýsinga síðna, mikilvægar viðskiptaupplýsingar flæða frá mörgum, mismunandi lindum. Með notkun á viðskiptagreind á borð við mælaborð, vefparta, skorkort og KPI. Miðlæg skýrslugerð veitir notendum einn miðlægan stað til þess að nálgast nýjustu upplýsingar, Excel skjöl eða KPI upplýsingar.
  • Veittu aðgang að einu samhæfðu umhverfi til þess að viðhalda innraneti, vefsíðum og veflægum kerfum, þvert á fyrirtækið
    Office SharePoint Server 2007 er með opin, skalanlegan þjónustudrifinn arkitektúr, sem veitir stuðning við samræmda samskiptastaðla eins og XML og SOAP, sem auðvelda samþættingu við núverandi ferla og kerfi. Með í kaupunum fylgja öflug upplýsingatækni tól og sniðmát fyrir smíði og viðhaldi kerfa sem innifela viðskiptaupplýsingar og gagnvirk verkferli.

Ítarefni


application/pdf

application/pdf

application/pdf
Stærð: 3 MB
Stærð: 493 KB
Stærð: 1 MB



 

Shortcuts


Not yet translated.


Search




Change fontsize