Office PerformancePoint Server 2007

Office PerformancePoint Server 2007, byggir á tækni Microsoft SQL Server 2005 við viðskiptagreind sem hefur sannað gildi sitt undanfarin ár, og býður eitt samhæft verkfæri til þess að hafa fullkomið yfirlit yfir alla þætti rekstrarins s.s.

  • Mælir stöðu reksturs fyrirtækisins
  • Greinir niðurstöður
  • Styður við áætlanir í rekstri

Allt sem styður við það markmið að stilla áherslur starfsfólks við áætlanir og markmið fyrirtækisins.  Office PerformancePoint Server 2007 sameinar eftirlit og áætlanagerð á einn miðlægan stað sem auðvelt er að stjórna og á sama tíma auðveldar sveigjanleika á notkun uppplýsinga í Microsoft Excel 2007 og Microsoft Office SharePoint Server 2007. 

 

Helstu kostir Microsoft Office PerformancePoint Server 2007 eru að aðstoða við að umbylta rekstri fyrirtækisins og breyta gögnum í yfirburði í samkeppni.

  • Heildstæð og samhæfð lausn til að fylgjast með rekstri fyrirtækisins

  • Eftirlitskerfi fyrir alla viðskiptanotendur þvert yfir allt fyrirtækið

  • Þróaðar greiningar og möguleikar á framsetningu

  • Samhæfð og samhangandi áætlanagerð

  • Styttri tími í áætlunargerð og aukin þátttaka

  • Áreiðanleiki frá starfsmanni til als fyrirtækisins

  • Heildaryfirsýn yfir fyrirtækið

  • Aukin samvinna á milli upplýsingatækni og viðskiptagreindar

  • Byggt á Microsoft viðskiptagreind

 

 

Helstu kostir Microsoft Office PerformancePoint Server 2007 eru að aðstoða við að umbylta rekstri fyrirtækisins og breyta gögnum í yfirburði í samkeppni.

Heildstæð og samhæfð lausn til að fylgjast með rekstri fyrirtækisins

Margar lausnir sem fylgjast með rekstarniðurstöðum þurfa að nota tengiforrit, sérhæfð viðmót og viðbætur til þess að tengjast mismunandi upplýsingakerfum og Microsoft Office umhverfinu.  Office PerformancePoint Server 2007 er samhæfður á öllum sviðum lausnarinnar - frá skýrslugerð og greiningum, til skipulagningar og fjárhagsáætlunar, til mælaborðs og áætlanagerðar.
PerformancePoint Server 2007 er hannaður til þess að bæta rekstrar og fjárhagsafkomu allra deilda og sviða fyrirtækisins.  Í gegnum þessa einu samhæfðu lausn er hægt að fylgjast með og greina árangur fyrirtækisins eða þær þrengingar sem að steðja og nýta þessa góðu yfirsýn til þess að skipuleggja og byggja áætlanir til framtíðar.

Eftirlitskerfi fyrir alla viðskiptanotendur

Á meðan flestar lausnir sem greina afkomu og árangur fyrirtækisins er beint að sérhæfðum sérfræðingum og þeim sem starfa við viðskiptagreind, þá er Office PerformancePoint Server 2007 hannaður til þess að ná til allra sem hafa áhrif á afkomu fyrirtækisins á öllum stigum starfseminnar.  PerfonmancePoint Server 2007 hefur samhæft notendaviðmót sem er kunnuglegt að auðvelt í notkun sem Office kerfi, eins og Microsoft Office Excel, Office Outlook og Office SharePoint Server.
Með skalanleika og áreiðanleika Microsoft SQL Server 2005 og viðskiptagreindar umhverfisins, getur fyrirtækið þitt á auðveldan hátt skilað réttum upplýsingum sem hjálpa sem breiðustum hópi starfsfólks að taka betri og áreiðanlegri ákvarðanir á skemmri tíma, án þess að þurfa að treysta á aðkomu tölvuþjónustu.

Eftirlit, greining og áætlunargerð þvert yfir allt fyrirtækið

Vegna mikils kostnaðar, flækjustigs og þörf á mikilli aðkomu IT sérfræðinga, þá eru flest eftirlits og greiningartól takmörkuð við frekar fáa, sérhæfða sérfræðinga.  Vegna þess að Office PerformancePoint Server 2007 situr inni í Office hugbúnaðinum sem fólk notar á hverjum degi er orðið framkvæmanlegt að veita öllum stjórnendum og framlínufólki sama aðgang að verðmætum upplýsingum úr hágæða eftirlits og greiningartóli.
Allir geta haft aðgang að mælingum, KPI, mælaborði og skýrslum til þess að sjá hvernig þeirra framlag er að hafa áhrif á gengi alls fyrirtækisins og hvernig fyrirtækið í heild gengur að ná markmiðum sínum, sem hefur áhrif á alla sem vinna að sameiginlegum ávinningi fyrirtækisins.

Þróaðar greiningar og möguleikar á framsetningu

Greiningar eru kjarninn í virkri viðskiptagreind.  Fyrirtæki hafa alla burði til þess að skara fram úr í samkeppninni, ef þeir sem taka lykilákvarðanir geta fljótt og örugglega greint stöðu fyrirtækisins, sem hjálpar þeim að taka betri ákvarðanir og framkvæma þær betur til samræmis við áætlanir og stefnu fyrirtækisins.
Með því að nota þá möguleika sem felast í Office PerformancePoint Server 2007, getur fólk notið þess að eitt viðskiptalíkan sem liggur undir öllum mælingum, greiningum og áætlanagerð.  PerformancePoint Server 2007 styður við og leiðbeinir starfsfólki þannig að það veit ávallt hvert stefnir og fólk er meðvitaðra um hvaða upplýsingar liggja í niðurstöðum viðskiptagreindarinnar.  Öflug sjónræn framsetning upplýsinga gerir mjög auðvelt að koma auga á hvert stefnir og hvaða tækifæri liggja í stöðunni hverju sinni, sem gerir alla áætlanagerð mun einfaldari.

Samhæfð og samhangandi áætlanagerð

Office PerformancePoint Server 2007 er með öfluga skipulagningar, fjárhagsgerðar og áætlunargerðarmöguleika sem gera fyrirtækjum kleift að skipuleggja betur og nýta hraðar mikilvægar auðlindir fyrirtækisins.  Sérfræðingar í greiningum og áætlunargerðum geta stjórnar miðlægt áætlunarsniðmátum fyrir aðra að vinna með.  Á auðveldan hátt er hægt að byggja módel sem innihalda lykil mæligildi, viðmið, útreikninga og önnur gildi sem gera fleira starfsfólki keift að taka þátt í áætlunargerðinni.
Þessi módel eru grunnurinn að áætluninni sem svo er metin í Microsoft Office Excel, sem leyfir starfsfólki að slá inn upplýsingar, sem byggðar eru á sérfræðiþekkingu hvers og eins.  Módelin tryggja áreiðanleika upplýsingavinnslunnar sem og að laga áætlanir vel að markmiðum fyrirtækisins - Allt í einu sveigjanlegu umhverfi sem allir þekkja og skilja hvernig á að nota, án þess að þurfa að fjárfesta í þjálfun og kennslu.

Styttri tími í áætlunargerð og aukin þátttaka

Eitt af algengari kvörtunum í mörgum fyrirtækjum er hversu langan tíma áætlunargerðir taka.  Að bíða í nokkrar vikur frá því að fyrstu tölur eru settar inn, þangað til búið er að yfirfara þær og samþykkja, auk upplýsinga og innleggs frá öðrum deildum.  Til þess að taka á þessum atriðum er Office PerformancePoint Server 2007 með öflugt verkferlakerfi (workflow) og samhæfingarmöguleika, sem auðvelda skipulagningu, fjárhags- og áætlunargerðina.
Office PerformancePoint Server 2007 stuðla að því að settar eru reglur sem hjálpa starfsfólki að útbúa verkefni, stjórna vinnu við áætlanagerð og fylgjast með því að upplýsingum sé komið inn á rétta staði á réttum tíma og samþykktar innan tímaramma.  Það er hægt að stytta tímann sem áætlunargerðin tekur úr nokkrum mánuðum í nokkrar vikur.  Á sama tíma fæst verðmæt innsýn í markmiðin til þess að stjórna vinnu og auðlindum til samræmis við áætlanir - Allt í kunnuglegu umhverfi Microsoft Office.

Áreiðanleiki frá starfsmanni til als fyrirtækisins

Office PerformancePoint Server 2007 notar módel-drifna nálgun.  Notendur geta búið til skorkort, mælaborð, greiningar og áætlanir sem samræmast þeirra eigin ábyrgð og markmið, sem og yfirmarkmið als fyrirtækisins.  Með því að bjóða upp á hámarks sveigjanleika, þjónar kerfið sérhæfðum markmiðum mismunandi deilda, sem uppfæra sig við upplýsingar annarra deilda og starfseininga.  Þannig hafa allir uppfært, staðlaða sýn á upplýsingarnar og nýjustu greiningar um árangur fyrirtækisins.

Heildaryfirsýn yfir fyrirtækið

Office PerformancePoint Server2007 býður upp á heildaryfirlit yfir alla starfsemi fyrirtækisins eins og fjármál, rekstur, sölu og starfsmannamál.  PerformancePoint Server 2007 notar SQL Server 2005 til þess að tengja saman upplýsingar frá mismunandi kerfum og starfsemi og skilar öllum notendum markmiðasettari sýn á fyrirtækið til framtíðar.
Einstakur eiginleiki PorformancePoint Server 2007 er model til model vörpun, sem leyfir notendum að leggja saman upplýsingar frá einu viðskiptamódeli yfir á annað.  Til dæmis þá er hægt að sjá auðlindir sem tilheyra einni rekstrareiningu er hægt að varpa yfir á viðskiptamódel fjármáladeildarinnar og borið saman við áætlanir starfsmannastjórnunar.  Notendur sjá aðeins upplýsingar sem þeir hafa heimild til að sjá, en sama hvar gögnin liggja, þá fá allir sjálfkrafa upplýsingar í tíma og komast hjá innsláttarvillum sem handvirk vinnsla hefur í för með sér.

Aukin samvinna á milli upplýsingatækni og viðskiptagreindar

Á meðan upplýsingatækni sér um undirliggjandi upplýsingakerfi og öryggi fyrir mikilvæg viðskiptakerfi, þá geta viðskiptafræðingar notað verkfærin í Office PerformancePoint Server 2007 til þess að stýra hlutverkum, vinnuflæði, viðskiptareglum og upplýsingum, án þess að þurfa stöðugt að treysta á þjónustu tæknimanna.  Þetta eykur möguleikann á að hraða þróun viðskipta módela, innleiðingu þeirra og aðlögun til þess að mæta breytingum í rekstrarumhverfinu.
PerformancePoint Server 2007 er auk þess með notendavæna hönnunarsvítu, sem veitir starfsfólki einfalda leið til þess að hanna sín eigin mælaborð og skorkort og að hanna gagnvirk greiningartöflur og gröf, án allrar aðstoðar tæknimanna.

Byggt á Microsoft viðskiptagreind

Með því að nota Microsoft viðskiptagreind, getur Office PerformancePoint Server 2007 hjálpað við að byggja alhliða, sveigjanlegt eftirlits og greiningarkerfi.  PerformancePoint Server 2007 notar Microsoft Office sem aðal notendaviðmót kerfisins, þannig að notendur geta notað kunnugleg tól eins og Excel til þess að nota upplýsingar, vinna þær með samstarfsfólki og leggja til verðmætar upplýsingar í áætlanagerð og mælingar fyrirtækisins.
PerformancePoint Server 2007 notar einnig reynda gagnavél SQL Server 2005 fyrir gagnavinslu;  greiningarmódel sem inniheldur reiknivél og gagnanám og mjög sveigjanlega skýrslugerð til að koma upplýsingum á framfæri við breiðan hóp starfsmanna.  Allt þetta er gert aðgengilegt á vefnum með Microsoft Office SharePoint Server 2007, býður öllum einn miðlægan stað fyrir mikilvægar upplýsingar, mælingar og greiningar sem hafa áhrif á rekstur fyrirtækisins.

Á þessari vefsíðu er hægt að skoða betur lykil upplýsingar um kerfið

Fyrir frekari upplýsingar, skoðið: http://www.microsoft.com/business/performancepoint/




 

Shortcuts


Not yet translated.


Search




Change fontsize